Saga Bruggsmiðjunnar er nú ekki löng, þar sem að fyrirtækið er einungis rúmlega eins árs.
Þó svo að fyrirtækið hafi verið starfrækt í stuttan tíma þá hefur það tekið miklum breytingum frá upphaflegri mynd. Hugmyndina af fyrirtækinu kom frá hjónum á Árskogssandi, henni Agnesi Sigurðardóttur og Ólafi Þresti Ólafssyni. Þau fengu hugmyndina um að opna litla bruggverksmiðju eftir að hafa séð frétt í sjónvarpinu frá lítilli verksmiðju í Danmörku. Viku seinna eru þau komin út til Danmerkur að skoða bruggverksmiðju. Þetta gerist í júní 2005. Í október skrifa þau undir kaupsamninga á bruggtækjum út í Tékklandi. Í desember 2005 var fyrirtækið formlega stofnað. Í byrjun árs 2006 koma síðan aðrir aðilar inn í